Finndu leiðina að varanlegum innri breytingum, auknu sjálfstrausti og innri ró.


Klínísk dáleiðsla vinnur með rótina bakvið kvíðann, streitunnar og takmarkandi hugsana- og tilfinningamynstra.

Um Örnu Rín

Arna Rín er sérfræðingur í klínískri dáleiðslumeðferð og hugrænni endurforritun.

Í yfir áratug hefur hún starfað með konum og mæðrum á sviði sjálfseflingar, djúpslökunar og endurheimtar. Sú reynsla hefur veitt henni djúpan skilning á þeim áskorunum sem margir einstaklingar upplifa í daglegu lífi, hvort sem um er að ræða kvíða, streitu, kulnun, sjálfsgagnrýni eða afleiðingar erfiðra áfalla.

Arna er félagi í Félagi Klínískra dáleiðanda og situr einnig í stjórn félagsins.

Hún leggur áherslu á faglega og einstaklingsmiðaða nálgun í meðferðartímum sínum.

Meðlimur í:

Ef þú upplifir einhver af eftirfarandi einkennum eða vandamálum í þínu lífi gæti meðferðardáleiðsla hjálpað þér.

  • Kvíði eða viðvarandi streituástand

  • Lágt sjálfsmat eða óöryggi

  • Einkenni kulnunar

  • Einkenni síþreytu

  • Þú ert fastur í mynstrum sem þú nærð ekki að gera breytingar á þrátt fyrir meðvitund um þau

Þó að við vitum oft hvað er okkur fyrir bestu, eða hvernig best er að bregðast við, finnum við sjálfráðu viðbröðgin oft með yfirhöndina.

Klínísk dáleiðsla miðar að því að vinna með rót vandans, ekki aðeins einkennin eða viðbrögðin.

Jákvæð breyting á einu sviði lífs hefur keðjuverkandi áhrif á öll önnur svið til hiðs betra.

,, Það var einstaklega gott að vinna með Örnu í hugrænni endurforritun.

Hún býr yfir sterku innsæi sem hún nýtti af fagmennsku og hlýju í vinnu okkar saman.

Þökk sé góðri tengingu og öruggu rými sem hún skapaði náði ég að gera þær breytingar sem ég þurfti á að halda.”

— Anna