Um Örnu Rín

Arna Rín starfar við klíníska dáleiðslumeðferð með sérhæfingu í hugrænni endurforritun.

Í yfir áratug hef ég starfað við að styðja konur, mæður og barnshafandi í átt að aukinni ró og vellíðan og dýpri tengingu við sig sjálfar.

Reynslan hefur veitt mér mikilvægan skilning á þeim áskorunum sem margir einstaklingar glíma við í dag, svo sem kvíða, streitu, kulnun, lágu sjálfsmati og tilfinningalegu álagi.

Ég trúi því að djúpstæðar breytingar geta átt sér stað þegar við fáum tækifæri til að vinna með rót vandans, fremur en að einblína eingöngu á einkennin.

Í starfi mínu í dag legg ég áherslu á að skapa faglegt rými þar sem einstaklingar geta unnið með undirliggjandi tilfinningar og mynstur sem hafa áhrif á líðan þeirra, sjálfsmynd og hvernig þau mæta umheiminum.

,,Öll berum við innra með okkur getu til breytinga, vaxtar og bata. Ég tel hlutverk mitt vera að leiðbeina og styðja einstaklinga í því ferli af virðingu og skilningi’’.

Menntun:

Ég er fjölmenntuð í fræðum jóga, jóga nidra djúpslökunar, bandvefsnuddi, reiki og er sérhæfður styrktarþjálfi fyrir barnshafandi og mæður.

Ég er einnig menntuð sem heilsumarkþjálfi og hef yfir áratug starfað með barnshafandi konum, mæðrum og börnum og hef ríka reynslu á námskeiðshaldi, að leiða hóptíma sem og einkatíma.

Ég starfa samkvæmt faglegum og siðferðilegum viðmiðum Félags klínískra dáleiðenda.