Dáleiðslumeðferð
Tímalengd
Hver meðferðartími er á bilinu 120–180 mínútur.
Markmið hverrar meðferðar er að vinna með undirliggjandi orsakir á markvissan hátt. Flestir upplifa verulegar breytingar á 1–3 tímum.
Hvað er klínísk dáleiðsla og hugræn endurforritun?
Við berum öll með okkur reynslu, viðhorf og mynstur sem hafa mótast í gegnum lífið og hafa áhrif á hvernig við hugsum, upplifum og bregðumst við aðstæðum.
Stundum geta þessi mynstur stuðlað að viðvarandi kvíða, streitu, óöryggi, lágu sjálfsmati sem verður oft ósjálfráður partur af persónuleika og hugsunum okkar.
Klínísk dáleiðslumeðferð með hugrænni endurforritun vinnur með þessi undirliggjandi mynstur og rætur fastra tilfinninga á markvissan hátt.
Einn af helstu kostum hugrænnar endurforritunar er að ekki er nauðsynlegt að endurupplifa erfiða reynslu eða sterkar tilfinningar til að vinna úr þeim. Meðferðin gerir kleift að vinna með rætur vandans á hátt þar sem oft þar einungis 1 -3 skipti til þess að fá varanlega úrlausn á vandanum.
Hugræn endurforritun er klínísk dáleiðslumeðferð sem sameinar viðurkenndar aðferðir á borð við Part Therapy, Subliminal Therapy og Ego State Theory við nýjustu þekkingu á starfsemi heilans og taugakerfisins.
Fyrir hverja er meðferðin?
Meðferðin getur meðal annars nýst einstaklingum sem vilja vinna með:
Kvíða og streitu
Lágt sjálfsmat
Óöryggi og sjálfsgagnrýni
Afleiðingar áfalla og erfiðrar reynslu
Svefnvandamál
Tilfinningalegt álag
Takmarkandi mynstur og viðhorf
Hvernig fer meðferð fram?
Meðferð hefst ávallt á samtali þar sem farið er yfir markmið, áskoranir og það sem þú vilt vinna með. Þar gefst tækifæri til að ræða væntingar til meðferðarinnar og svara þeim spurningum sem kunna að vakna.
Þú færð skýrar upplýsingar um hvernig klínísk dáleiðslumeðferð og hugræn endurforritun virka og hvað þú getur búist við í ferlinu.
Mikilvægt er að hafa í huga að þú ert ávallt með fulla meðvitund og stjórn á meðan á meðferð stendur. Þú deilir aðeins því sem þú treystir þér til og meðferðin fer alltaf fram á þínum forsendum.
Að loknu samtali er unnið með djúpa slökun og dáleiðsluástand sem auðveldar aðgang að undirliggjandi hugsana-, tilfinninga- og viðbragðsmynstrum. Þar skapast tækifæri til að vinna með rætur þeirra áskorana sem hafa áhrif á líðan og daglegt líf.
Hver meðferð er einstaklingsmiðuð og sniðin að þínum þörfum. Unnið er á þeim hraða sem hentar þér.
Margir upplifa eftir meðferð:
Aukna innri ró
Meira sjálfstraust
Hærri streituþröskuld
Betri tengingu við sjálfa sig
Aukið öryggi í eigin lífi
Frelsi frá takmarkandi mynstrum og viðhorfum
Meiri skýrleika og jafnvægi í daglegu lífi