Leið að innri breytingum, auknu sjálfstrausti og ró.


Klínísk dáleiðsla vinnur að því að nálgast rótina bakvið kvíðann, streitunnar og takmarkandi hugsana- og tilfinningamynstra.

Um Örnu Rín

Arna Rín er sérfræðingur í klínískri dáleiðslumeðferð og hugrænni endurforritun.

Í yfir áratug hefur hún starfað með konum og mæðrum á sviði sjálfseflingar, djúpslökunar og endurheimtar. Sú reynsla hefur veitt henni djúpan skilning á þeim áskorunum sem margir einstaklingar upplifa í daglegu lífi, hvort sem um er að ræða kvíða, streitu, kulnun, sjálfsgagnrýni eða afleiðingar erfiðra áfalla.

Arna er félagi í Félagi Klínískra dáleiðanda og situr einnig í stjórn félagsins.

Hún leggur áherslu á faglega og einstaklingsmiðaða nálgun í meðferðartímum sínum.

Meðlimur í:

Ef þú upplifir einhver af eftirfarandi einkennum eða vandamálum í þínu lífi gæti meðferðardáleiðsla hjálpað þér.

  • Kvíði eða viðvarandi streituástand

  • Lágt sjálfsmat eða óöryggi

  • Einkenni kulnunar

  • Einkenni síþreytu

  • Þú ert fastur í mynstrum sem þú nærð ekki að gera breytingar á þrátt fyrir meðvitund um þau

Þó að við vitum oft hvað er okkur fyrir bestu, eða hvernig best er að bregðast við, finnum við sjálfráðu viðbröðgin oft með yfirhöndina.

Klínísk dáleiðsla miðar að því að vinna með rót vandans, ekki aðeins einkennin eða viðbrögðin.

  • ,,Það var einstaklega gott að vinna með Örnu í hugrænni endurforritun. Hún býr yfir sterku innsæi sem hún nýtti af fagmennsku og hlýju í vinnu okkar saman. Þökk sé góðri tengingu og öruggu rými sem hún skapaði náði ég að gera þær breytingar sem ég þurfti á að halda.”

    Anna

  • ,,Arna var eins og stjörnuljós sem leiðbeindi mér í gegnum dimmt rými. Ég nálgaðist tilfinningar og aðstæður á öruggan hátt með myndum sem voru mér sterkar og fallegar.’’

    S.Y.

  • ,,Það var ótrúleg upplifun að fara í dáleiðslu hjá Örnu. Það sem mér fannst mjög mikilvægt er maður er með fulla stjórn allan tímann. Arna hefur svo yndislega nærveru og hjálpar manni að ná í tilfinningar, minningar og hugsanir sem hafa legið í undirmeðvitundinni í langan tíma. Hluti sem að hafa skapað togstreitu innra með manni og haft áhrif á andlega og líkamlega heilsu án þess maður viti af því. Ég mæli klárlega með dáleiðslu hjá Örnu !’’

    KVK